Jökulheimar Skáli Jöklarannsóknafélags Íslands í Tungnaárbotnum. Þar var reistur skáli árið 1955 og annar stærri 1965. Ekið er til Jökulheima eftir Veiðivatnaleið en af henni við Vatnaöldur og síðan áfram austan Ljósufjalla. Í Jökulheimum ertu virkilega einn í heiminum. Staðurinn er þekktur hjá jeppmönnum, en að vetrinum er þetta ein fjölfarnasta leiðin á Vatnajökul og á Grímsfjall.
Tungnaárbotnar Innri- og Fremri-Tungnaárbotnar, vestan undir Vatnajökli. Tungnaá á upptök í Innri-Botnum, vestan undir Kerlingum. Er hún vatnslítil í fyrstu og rennur til suðvesturs með jökuljaðrinum en lágur móbergshryggur, Jökulgrindur, heldur að henni að vestan. Fremri-Botnar liggja í krika uppi við jökul, milli hans og Heimabungu sem er allvíðáttumikil melalda. Í Fremri-Botnum er allmikið graslendi, Botnaver. Uppi við jökulinn eru gróðurteygingar milli kvísla. Heita þar Jökulfitjar. Í Botnaveri er móbergstindur sem nefndur er Rati (759 m y.s.), umleikinn Tungnaá. Næsta fjall vestan við hann, eftir að Tungnaá er öll komin saman, heitir Gnapi. Heimild: Íslandshandbókin útgáfa 1995. |