Víðáttumikil öræfi milli Suður- og Norðurlands. Mörk Sprengisands eru ekki föst en oftast er hann talinn ná frá Eyvindarveri að sunnan og norður í Kiðagil. Mestur hluti Sprengisands liggur í 700-800 m hæð y.s. Lengd hans frá suðvestri til norðausturs er um 70 km og breiddin mest um 30 km. Sandurinn er gróðurlaus að kalla má. Er hann allur jökulurinn, víðast grágrýtishraun í berggrunni og kollóttar móbergsöldur á stangli. Yfirleitt er sandurinn greiðfær og torfærulaus. Eldra nafn á Sprengisandi er Gásasandur. Heimild: Íslandshandbókin útgáfa 1.0. Námsgagnastofnun 1995. |