Go to Main Page



  
28 Ágúst 14:20
Salernisaðstaða við Kerlingu
Suðurglugginn
Framkvæmdir Grímsnes- og Grafningshreppur hefur samþykkt beiðni Ferðafélags Íslands um að félagið fái að setja upp salernisaðstöðu við Kerlingu í Bláskógabyggð. „Sveitarfélagið á gangnamannakofa við Kerlingu og Bláskógabyggð á einnig hús þar.Ferðafélagið óskaði eftir að fá að setja upp salernisaðstöðu við húsin og við höfum samþykkt það fyrir okkar leyti,“ segir Ingvar G. Ingvarsson, oddviti Grímsness- og Grafningshrepps. „Í sumar hefur verið talsverður gangur í húsin sem við teljum mjög jákvætt á meðan umgengni er til fyrirmyndar.“



Til baka