Go to Main Page



  
Suðurland >
Flúðir
Heimilisfang: Flúðir Sími  4806600
Pósnúmer: 845 Fax  4806606
Veganúmer: 30 Netfang  hruni@fludir.is
Vegaheiti: Skeiða- og Hrunamannavegur Link to website  http://www.fludir.is
Service available near or on Flúðir
                                       

Flúðir er þéttbýliskjarni miðsvæðis í Hrunamannahreppi og þykir þar notalegt og fagurt. Litla-Laxá rennur í gegnum þorpið og mikill jarðhiti er á svæðinu. Ylrækt er mikil og er þar mesta svepparækt landsins. Einnig er nokkur annar iðnaður á staðnum og má nefna þar einu límtrésverksmiðju landsins. Afar fjölbreytt þjónusta er í boði fyrir ferðamenn, góð hótel, önnur fjölbreytt gisting og gott tjaldsvæði. Alls konar afþreying sem tengist jarðhita stendur til boða, og á Flúðum er góð sundlaug. Flestir ferðamenn ættu að finna hér eitthvað við sitt hæfi. Stutt er í veiði í ám og vötnum.

Margir sögustaðir eru í grenndinni og má þar nefna kirkjustaðinn Hruna, en hann tengist sögunni „Dansinn í Hruna”, þegar kölski sjálfur kom nýjársnótt eina, þegar heimamenn sátu að svalli og dansi í kirkjunni, og kippt henni niður í undirdjúpin.

Vegalendin frá Reykjavík er 103 km.