Go to Main Page



  
Afþreying >

Afþreying á Suðurlandi

Endalausir afþreyingarmöguleikar eru í boði á Suðurlandi og erfitt er að velja úr hvað skal gera.  T.d. er hægt að upplifa Suðurland á skemmtilegan máta á hestbaki, þú getur gengið um Þingvelli og andað að þér sögunni á fæðingarstað lýðræðisins þar sem Alþingi Íslendinga kom saman fyrir rúmum þúsund árum síðan.  Þú getur líka keyrt um Suðurland að eigin vilja, heimsótt bændur og búalið og keypt þér minjagripi í leiðinni.  Ef þér finnst gaman að veiða þá er heppnin með þér því á Suðurlandi er að finna gjöfular ár og vötn þar sem hægt er að krækja í þann stóra.

Golfvellir eru af ýmsum stærðum og gerðum, allt frá 9 holu upp í fullvaxna 18 holu velli.  Gnótt er af merktum gönguleiðum, mismunandi erfiðar, er að finna útum allt Suðurland.  Hægt er að fara í daglangar eða lengri jeppaferðir uppá jöklana, þá einu sem eftir eru í Evrópu.  Fossar, jöklar, hverir, eldfjöll og frábærar sveitir er eitthvað sem þú sérð hvergi nema á Suðurlandi.  Komdu og deildu þeim með okkur, travelsouth.is.