Go to Main Page



  
Áhugaverðir staðir >

Áhugaverðir staðir á Suðurlandi

Staðir með mikla sögu má finna á Suðurlandi.  Helst ber þar að nefna söguslóðir á Þingvöllum þar sem Alþingi kom fyrst saman fyrir rúmum þúsund árum.  Víkingabærinn Stöng í Þjórsárdal sem grófst undir í Heklugosi árið 1104 var grafinn upp árið 1939 og hægt er að skoða upprunalega bæinn sem og endurgerð hans, Þjóðveldisbæinn sem var byggður árið 1970.  Skálholt er einn af mikilvægustu sögustöðum á Íslandi, þar sem hin unga kirkja var skipulögð.  Þar varð mikilvægasta miðstöð mennta og stjórnsýslu í margar aldir. Í kirknatali Páls Jónssonar biskups frá því um 1200 er sagt að Skálholt sé dýrlegastur bæja á Íslandi.  Í Vestmannaeyjum má finna Pompei Norðursins en uppgröftur húsa, frá því að eldfjallið í Heimaey gaus árið 1973, er langt kominn.  Þetta eru aðeins fáein dæmi þess hvaða staðir eru áhugaverðir og vert að heimsækja á Suðurlandi.

Ísland er leiðandi í notkun vistvænna og endurnýjanlegra orkugjafa og á Suðurlandi má finna nokkrar af stærstu virkjunum landsins sem eru opnar almenningi á sumrin.  Þykkvibær má teljast sem eini stóri bóndabærinn á Suðurlandi en þar eru ræktaðar kartöflur í stórum stíl sem gerir svæðið áhugavert til heimsóknar.  Í Jökulsárlóni má finna ísjaka er hafa brotnað af Vatnajökli og hefur lónið m.a. verið notað sem upptökustaður stórra kvikmynda frá Hollywood.  Hægt er að finna ýmis falleg stöðuvötn á Suðurlandi og er fuglalíf er fjölbreytilegt enda koma hér við margar tegundir farfugla yfir sumartímann.

Hvort sem þú ert náttúruunnandi eða vilt frekar skoða eitthvað sem hefur verið byggt af mannana höndum þá munt þú alltaf geta fundði eitthvað við þitt hæfi á Suðurlandi.