| Farfuglaheimilið í Árnesi er ca. 90 km frá Reykjavík og er mjög vel staðsett m.t.t. flestra vinsælustu ferðamannastaða á Suðurlandi. Rétt við heimilið er útisundlaug með heitum pottum og veitingastaður sem selur morgunmat, hádegismat og kvöldmat til einstaklinga og hópa. Á heimilinu er vel útbúið gestaeldhús ásamt setustofu með sjónvarpi. Margar fallegar gönguleiðir eru frá heimilinu og vegurinn í Þjórsárdal liggur rétt við heimilið. Þar er að finna marga athyglisverða staði, s.s. Gjána, Gjáarfoss, Háafoss, Hjálparfoss, Þjóðveldisbæinn að Stöng og síðast en ekki síst Heklu. Næstu farfuglaheimili: Laugarvatn 57 km., Fljótsdalur 50 km. |