Fosshótel Mosfell er 2/3 stjörnu ferðamannahótel með 35 herbergi með baði og 18 herbergi án baðs. Einnig er þar morgunverðarsalur, setu- og sjónvarpsstofa, aðgangur að interneti og ráðstefnusalur sem hentar mjög vel fyrir minni fundi, fyrirlestra og myndbandssýningar. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Frá Hellu er upplagt að skipuleggja dagsferðir í Þórsmörk, Landmannalaugar og Þjórsárdal, að Heklu, Gullfossi og Geysi, til Þingvalla og Vestmannaeyja, svo einhverjir staðir séu nefndir. Að dvelja 3-5 nætur á Fosshóteli Mosfelli veitir því ferðamönnum sem vilja kynnast Suðurlandi forskot á sæluna því mikill tími og akstur sparast ef miðað er við Reykjavíkurdvöl til sömu erinda. |