Gisti- og heilsuheimilið Brekkukot er opið árið um kring. Í boði er gisting í tveimur húsum Brekkukoti og Veghúsum, samtals um 33 rúm. Allir gestir hafa aðgang að útisundlaug og heitum potti. Í Brekkukoti eru 3 tveggja manna og 7 eins manns herbergi með sameiginlegum snyrtingum en að auki er þar íbúð með 2 rúmum, svefnsófa í stofu fyrir 2, baðherbergi og eldhúskrók. Rúmgóð eldunaraðstaða er í húsinu, auk vistlegrar sjónvarpsstofu og fallegri sólstofu. Í Veghúsum eru 6 tveggja manna herbergi með sérsnyrtingu og 2 íbúðir. Góð eldunaraðstaða og falleg rúmgóð stofa með stórum sólpalli og fögru útsýni. Gestir geta sjálfir séð um matseld að hluta eða öllu leyti en í boði er morgunverður, hádegisverður, kaffi og kvöldverður fyrir hópa ef óskað er. Með hvoru húsi fylgir gasgrill, dvd-spilari og geislaspilari, hárblásari og barnarúm. Brekkukot býður upp á glæsilega aðstöðu til funda, námskeiða og ráðstefnuhalds í Sesseljuhúsi og mismunandi byggingum á Sólheimum. Einnig er mjög góð aðstaða til margskonar veisluhalda svo sem stórafmæla, brúðkaupa og ýmiskonar samkvæma. Á boðstólum eru metnaðarfullar móttökudagskrár fyrir hópa sem má fá frekari upplýsingar um í kaflanum Móttaka hópa. Sólheimar ráða vel við og hafa reynslu af móttöku stórra hópa sem smárra. |