| Frost og Funi í Hveragerði er í þægilegri fjarlægð frá ys og þys borgarlífsins og er opið allt árið. Við tökum bæði á móti einstaklingum og hópum og leggjum áherslu á að gestir okkar eigi notalega dvöl, hvort sem ætlunin er að eiga rómantíska helgardvöl, hittast til skrafs og ráðagerða, eða bara slaka á frá önnum hversdagsins. Öll aðstaða er útbúin með hvíld og vellíðan gesta í huga. Gisting er í vel búnum herbergjum með íslenskri myndlist á veggjum, auk sundlaugar, gufubaðs og heitra potta. Móttaka og fundarherbergi með fullkomnum fundarbúnaði er í sérhúsi. |