Hallandi er notalegt gistiheimili rétt fyrir austan Selfoss 4 km frá þjóðveginum. Húsið stendur á frábærum útsýnisstað, skammt frá Hvítá.
Í húsinu er gistipláss fyrir 6-8 manns í uppábúnum rúmum og eitt baðherbergi með sturtu. Öll aðstaða er mjög góð. Möguleiki á nettenginu.
Rúmgóð stofa með sjónvarpi og er hún opin inn í vel útbúið eldhús.
Útiaðstaða er góð, leiktæki fyrir börn, stór og mikill pallur með góðu kolagrilli og heitum potti. Stórt tún er við húsið þar sem gott er að koma að tjaldvögnum og tjöldum. |