Þegar fjölskyldan flutti í nýtt íbúðarhús 1999 var eldra íbúðarhúsið gert upp og er þar nú aðstaða fyrir ferðafólk. Húsið var byggt 1924 og hefur verið breytt og bætt við eins og gengur en hefur enn yfir sér sjarma liðinna tíma. Stór sólpallur með nuddpotti er við húsið. Þar er líka kolagrill og er gestum bent á að taka kol með sér. Í Gistihúsinu er rúmgott tveggja manna herbergi með fataskáp og uppbúnum rúmum, tvö tveggja eða þriggja manna herbergi með uppbúnum rúmum, í risinu eru tvö herbergi annað fyrir fjóra, hitt fyrir sex manns í uppbúnum rúmum, eldhús með eldavél, kaffivél, uppþvottavél, eldhúsáhöldum og borðbúnaði, þægileg setustofa og að sjálfsögðu baðherbergi með sturtu. |