Gistihúsið
Gistihúsið er tilvalið fyrir stóra sem litla hópa. Það tekur 18 manns, með góða eldunar og hreinlætisaðstöðu.
Húsið var byggt árið 1990. Það er gamaldags í útliti, timburhús með torfþaki. Það fellur vel í umhverfið og er hlýlegt að innan.
Fólk getur komið og gist eina nótt eða fleiri hvort sem það er að fara á hestbak, njóta sveitasælunnar, slaka á, skoða fallega staði í kring, svo sem Gullfoss og Geysir, Landmannalaugar, Heklu og ýmsa fleiri áhugaverða staði.
Húsið hentar vel fyrir fjölskyldur sem vilja dvelja í sveitinni, vinahópa, fundi og fyrirtækjahópa.
Gistihúsið er opið allt árið í kring. |