Go to Main Page



  
Gisting >
Hestheimar
Heimilisfang: Hestheimar Sími  4876666
Póstnúmer: 851 Fax  4876666
Veganúmer: 281 Netfang  hestheimar@hestheimar.is
Vegheiti: Sumarliðabæjavegur Link to website  http://www.hestheimar.is
Þjónusta í boði nálægt eða við Hestheimar
   
Gisting
Sérstaklega notalegt gestahús þar sem í boði er gisting í fjórum 2ja manna herbergjum (þar af tvö með sérsnyrtingu), ásamt baðstofulofti þar sem allt að 12 manns geta gist. Þannig geta alls 20 manns gist í Gestahúsinu okkar á sama tíma. Einnig er heitur pottur við húsið, ásamt útigrilli. Fyrir hópa bjóðum við uppá að fá nuddara og/eða jógakennara á staðinn. Að auki bjóðum við uppá huggulegt baðstofuloft á braggaloftinu þar sem allt að 18 manns geta gist, með sameiginlegum snyrtingum og sturtuaðstöðu, mjög heppilegt fyrir stærri hópa sem vilja notalega stemmingu. Upplýsingar um verð og fleira eru fúslega veittar í síma: 487-6666.
 
Veitingar

Bjóðum upp á hlaðborð fyrir smærri og stærri hópa á nýju ári, þar sem allt er heimabakað og heimilislegur matur og hlýlegt andrúmsloft er í fyrirrúmi. Veitingarnar framreiddar í notalegum veitingasal þar sem útsýnið svíkur engan ! Hekla og Tindfjalla-, Mýrdals- og Eyjafjallajökull blasa við út um gluggana á veitingasalnum okkar. Einnig er ekta sveitastemming í veitingasalnum við reiðhöllina þar sem gestir okkar snæða og geta svo tekið sporið í reiðhöllinni á eftir. Bjóðum upp á hljómsveit, trúbadora eða harmónikkuleikara, allt eftir því hvað fólk vill. Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing. Hafðu endilega samband í síma : 487-6666 eða hestheimar@hestheimar.is !