Go to Main Page



  
Gisting >
Hótel Flúðir
Heimilisfang: Vesturbrún 1 Sími  4866630
Póstnúmer: 845 Fax  4866530
Veganúmer: 30 Netfang  fludir@icehotels.is
Vegheiti: Skeiða- og Hrunamannavegur Link to website  http://www.icehotel.is
Þjónusta í boði nálægt eða við Hótel Flúðir
          
Steinsnar frá Reykjavík

Hótel Flúðir er í einu blómlegasta jarðræktar- og ferðaþjónustuhéraði landsins, steinsnar frá Reykjavík. Þar er að finna tvo mjög góða veislu- og fundasali. Á Flúðum er tilvalið að halda stefnumótunar- og vinnufundi fjarri ys og þys borgarinnar, en samt sem áður í flægilegri nálægð við hana.

18 holu golfvöllur

Á Flúðum er hægt að bregða sér í sund og heitan pott, spila golf á 18 holu velli, auk þless sem fótboltavöllur er í göngufæri. Einnig er hestaleiga og fjöldi merktra gönguleiða í nágrenninu. Á hótelinu er mjög góður veitingastaður með frábæru útsýni yfir sveitina og bar.

Herbergin
Á hótelinu eru 32 nýtískulega innréttuð, parketlögð herbergi, með tveimur einbreiðum rúmum eða einu tvíbreiðu. Á öllum herbergjum er sími, hárþurrka sjónvarp og sturta.

Veitingar
Á Hótel Flúðum er mjög góð aðstaða til að taka á móti hópum sem vilja gera sér glaðan dag í rómantísku umhverfi.

Ferskt grænmeti frá sunnlenskum garðyrkjubændum setur sterkan svip á veisluföngin sem framreidd eru í hlýlegum veitingasal með frábæru útsýni yfir sveitina.

Bar
Opinn daglega frá kl. 11.30 – 24.00. Einnig er krá í þorpinu í þægilegri göngufjarlægð.

Fundir og veislur
Þann 24 júní tókum við í notkun nýjan og glæsilegan ráðstefnu-og fundarsal með stórfenglegu útsýni. Salurinn er búinn fullkomnustu tækjum: rafknúnu tjaldi 2,40m á breidd, skjávarpa, DVD, video, þráðlaus nettenging, þráðlaust hljóðkerfi, laser bendir.

Salurinn er 90 m2 stækkanlegur í 120 m2. Salurinn tekur 34 manns á U-borði, 60-80 í skólastofu, 120 í bíó, 100 í móttöku.

Á Hótelinu eru einnig tveir mjög góðir veislu- og fundarsalir sem taka allt að 150 manns, auk þess sem gestum bjóðast til afnota 3 salir sem eru steinsnar frá hótelinu. Á Flúðum er tilvalið að halda stefnumótunar- og vinnufundi fjarri ys og þys borgarinnar en samt sem áður þægilegri nálægð við hana.

Nánari upplýsingar: conference@icehotels.is

Morgunverður
Morgunverðarhlaðborð í veitingastofunni frá kl. 07.30 – 10.00. Hafið samband við móttöku ef óskað er eftir morgunverði fyrr eða herbergisfljónustu.