Go to Main Page



  
Gisting >
Hótel Hekla
Heimilisfang: Hótel Hekla Sími  4865540
Póstnúmer: 801 Fax 
Veganúmer: Netfang  info@hotelhekla.is
Vegheiti: Link to website  http://www.hotelhekla.is
Þjónusta í boði nálægt eða við Hótel Hekla
Hótel Hekla er sveitahótel, um 75 km. fyrir austan Reykjavík við þjóðveg 30. Hótel Hekla er vel í sveit sett,er nálægt höfuðborgarsvæðinu og Keflavíkurflugvelli. Það tekur innan við klukkustund að aka hingað frá Reykjavík og hálfa aðra stund frá Keflavíkurflugvelli. Hér er upplagt að hefja eða ljúka ferð um landið.

Hótelið stendur miðsvæðis á Skeiðum með útsýni til allra átta. Fjallahringurinn er einstakur þar sem fjallið Hekla gnæfir í allri sinni dýrð. Hótel Hekla er eitt besta sveitahótel landsins, með 36 þægileg og vel búin herbergi, öll með sér baðherbergi og sjónvarpi. Í öllu hótelinu er jafnframt þráðlaust internetsamband fyrir gesti.

Starfsfólk Hótels Heklu er þekkt fyrir hlýlega og góða þjónustu og frábæran mat. Rúmgóður, bjartur matsalurinn tekur allt að 120 manns í sæti. Hér er íslenskt hráefni í hávegum haft í bland við strauma og stefnur evrópskrar matargerðar. Í nóvember á hverju ári er síðan boðið upp á stórkostlegar villibráðaveislur.

Hótel Hekla býður upp á nýjung á Íslandi, matarveislur við opin eld í Lavo-tjaldi, að hætti Indjána.

Fundarsalur Hótel Heklu, tekur allt að 50-60 manns í sæti og er vel búinn tækjum, s.s. skjávarpa, myndvarpa, myndbandstæki og DVD.

Hótel Hekla er stórskostlegur staður með frábærri aðstöðu fyrir þig. Komdu sjálfum þér og vinum þínum á óvart. Nú er hægt að fá skemmtileg gjafakort á gistingu og mat á Hótel Heklu. Tilvalið fyrir einstaklinga og fyrirtæki,semtækifærisgjöf.