Hótelið Hótel Hvolsvöllur er veitinga- og gististaður sem býður fjölbreytta þjónustu. Hótelið er miðsvæðis á Suðurlandi, á friðsælum og fallegum stað, í um 100 km fjarlægð frá Reykjavík.
Hótel Hvolsvöllur er glæsihótel á góðum og rólegum stað með 24 lúxusherbergjum í nýrri álmu, tvö þeirra sérstaklega hönnuð með þarfir fatlaðra í huga. Einnig eru 16 herbergi í eldri hluta. Á hótelinu er boðið upp á góðan, metnaðarfullan matseðil, bar, heitan nuddpott auk þess sem nuddari er starfandi í húsinu. Á Hvolsvelli er sundlaug og í næsta nágrenni eru 18 holu golfvöllur, lax- og silungsveiðiár ásamt hestaleigu.
Frá Hvolsvelli er auðvelt að heimsækja allar helstu náttúruperlur og sögustaði héraðsins. Má þar nefna Þórsmörk, Heklu, Keldur, Fljótshlíð, Skógafoss, Landmannalaugar og Dyrhólaey. Einnig er stutt í Þingvelli, Gullfoss og Geysi. Hótelið tekur að sér að skipuleggja ferðir fyrir hópa og hefur séð um hinarýmsu óvissuferðir fyrir hópa og fyrirtæki upp á Mýrdalsjökul, til Vestmannaeyja, hestaferðir og söguslóð. Herbergin Byggt var við hótelið árið1999 og ný svefnálma var tekin í notkun það ár og alls eru nú 40 herbergi sem standa gestum til boða.
Í nýrri svefnálmu eru 24rúmgóð tveggja manna herbergi. Öll herbergin eru með sturtu og sjónvarpi, og tvö þeirra eru sérstaklega hönnuð með tilliti til þarfa fatlaðra gesta. Hægt er að bæta við aukarúmum á herbergi.
Sextán herbergi eru í eldri álmu byggingarinnar, 3 þeirra með sturtu og 13 með vaski á herbergjum og sameiginlegri sturtu á gangi. Þá er nuddpottur upp á þaki hótelsins með góðu útsýni til Eyjafjallajökuls og til fjalla allt í kring. |