Go to Main Page



  
Gisting >
Hótel Rangá
Heimilisfang: Hótel Rangá Sími  4875700
Póstnúmer: 851 Fax  4875701
Veganúmer: 1 Netfang  hotelranga@hotelranga.is
Vegheiti: Hringvegur Link to website  http://www.hotelranga.is
Þjónusta í boði nálægt eða við Hótel Rangá
      

Fjögurra stjörnu lúxus sveitahótel

Velkomin á Hótel Rangá Hótel Rangá er fyrsta flokks lúxus hótel, staðsett á Suðurlandi mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Það er gagngert byggt til að mæta kröfum gesta, sem sækjast eftir mjög góðri gistingu og miklum gæðum í þjónustu. Hótel Rangá stendur við þjóðveg no 1 á bakka Eysti Rangár, en hún er þekkt sem laxveiðiá. Útsýnið frá hótelinu spillir ekki fyrir, Hekla blasir við til norðurs, síðan er fjallahringurinn til austurs og norðausturs, í suðaustri trónir svo Eyjafjallajökull og Vestmannaeyjar í suðri.
Hótelið er búið 38 þægilegum herbergjum, veitingasal, setustofu, ráðstefnusal, heitir pottar eru utandyra og í nágrenninu er hægt að velja um ýmsa afþreyingu. Verið er að stækka hótelið í áföngum um 12 ný herbergi, þar af eru tvær svítur, nýr veitingassalur verður byggður, nýtt eldhús og ráðstefnusalur. Hótel Rangá býður: Metnaðarfulla þjónustu, lúxus og hvíld. Eina 4 stjörnu hótelið á Suðurlandi