Go to Main Page



  
Gisting >
Hótel Selfoss
Heimilisfang: Eyravegur 2 Sími  4802500
Póstnúmer: 800 Fax 
Veganúmer: 1 Netfang  asi@hotelselfoss.is
Vegheiti: Hringvegur Link to website  http://www.selfosshotel.is
Þjónusta í boði nálægt eða við Hótel Selfoss
     
Hótel Selfoss

Hótel Selfoss er glæsilegt og nútímalegt 99 herbergja hótel, staðsett á Selfossi höfuðstað suðurlands. Hótel Selfoss opnaði eftir stórkostlegar viðbætur og endurnýjun þann 1. júní 2002. Þá bættust við 79 sérlega vel útbúin lúxus herbergi.

Á Hótel Selfossi er háklassa veitingastaður, Riverside sem tekur allt að 300 manns í sæti, fullkomin funda og ráðstefnuaðstaða fyrir allt að 450 manns, ásamt kvikmyndahúsi, tískuvöruverslun og hárstúdíói. Einnig er unnið að opnun á nýrri líkamsræktarstöð og lúxusheilsulind auk snyrtistofu.

Hótel Selfoss býður uppá glæsileg herbergi. Hægt er að velja um Standard, standard superior, delux og svítu.Herbergin erumeð gervihnattasjónvarpi, háhraða tölvutengingu, síma, smábar, hárþurrku og öryggishólfi. Hægt er að fá sent uppá herbergi straujárn og straubretti. Auk þesser boðið uppáalmenna herbergisþjónustu fyrir gesti Hótel Selfoss.

Á Hótel Selfossi er einnig lítil og viðkunnaleg verslunarmiðstöð með Stofunni hárstúdíói og Central tískuhúsi. Unnið er að stækkun og mun þá væntanlega bætast við blóma- og gjafavöruverslun ásamt fleirum verslunum.

ÁHótel Selfossi erkvikmyndahúsið Selfossbíó, nýlegt og glæsilegt með vönduðum sætum og fullkomnu hljóð- og myndkerfi. Selfossbíó er í fullum rekstri og í samvinnu við Sambíóin, Skífuna og Myndform, svo þar eru ávallt nýjustu myndirnar í sýningu og margar stórar frumsýningar á ári hverju. Með Selfossbíó bætast við möguleikar á tveimur ráðstefnusölum til viðbótar fyrir alls 180 manns.


Hótelherbergin
Hótel Selfoss býður uppá 99 glæsileg herbergi. Hægt er að velja um standard, standard superior, delux og svítu.
Herbergin erumeð gervihnattasjónvarpi, háhraða tölvutengingu, síma, smábar, hárþurrku og öryggishólfi. Öll herbergin eru með baðherbergi,annað hvort meðsturtu eða baðkari/ sturtu.Hægt er að fá sent uppá herbergi straujárn og straubretti.
Auk þesser boðið uppáalmenna herbergisþjónustu fyrir gesti Hótel Selfoss. Á Hótel Selfossi eru 10 herbergi hönnuð sérstaklega fyrir fólkíhjólastól.
Á Riverside restauranter borið fram morgunverðarhlaðborð fyrir gesti Hótel Selfoss.

Riverside restaurantRiverside restauranter staðsettur á Hótel Selfossi. Riverside er nútímalega hannaður, bjartur og einstaklega þægilegur veitingastaður.Þarer lögð rík áherslaá að veita bragðgóðan og safaríkan mat, faglega þjónustu íþægilegu andrúmslofti.
Út um glerbyggða framhlið Riverside nýtur hver gestur stófenglegs panorama útsýnis yfir Ingólfsfjall ogÖlfusá sem rennurfyrir utan gluggann. Einnig er á Riverside bar með notalegri setustofu þar sem gestir geta látiðfara vel um sigvið snarkandi arineld.
Skoðaðu okkar glæsilegu matseðla:
Á Riverside restauranter borið fram morgunverðarhlaðborð fyrir gesti Hótel Selfoss. Borðapantanir í síma 480 2500 eða á info@hotelselfoss.is

Fundir og ráðstefnur

Hótel Selfoss býður uppá frábæra aðstöðu fyrir fundi og ráðstefnur.Á hótelinu eru þrír mjög vel útbúnir fundarsalir og ermögulegt að opna á milli salanna svo úr verði einn stór sem tekur alls um 400 manns í sæti.

Öllum búnaði s.s. skjávörpum, hljóðkerfi og ljósum er stýrt með nýjustu tölvutækni.

Boðið er uppá fyrsta flokks þjónustu á mat og drykk fyrir fundargesti, en á Hótel Selfossi er fullkomið a la carte eldhús og cook and chill kerfi sem getur afgreitt allt að 550 manns á skömmum tíma.

Starfsfólk Hótel Selfoss leggur mikinn metnað í að viðhalda aðgengilegri aðstöðu ásamt góðri þjónustu svo úr verði árangursríkir fundir og ánægðir gestir. Þá er lögð rík áhersla á að hverjum viðburði sé sniðinn aðbúnaður sem hentar hverju sinni.
Á Hótel Selfossi er Selfossbíó, glæsilegt kvikmyndahús með vönduðum sætum og fullkomnu hljóð- og myndkerfi. Selfossbíó er í fullum rekstri og í samvinnu við Sambíóin, Skífuna og Myndform, svo þar eru ávallt nýjustu myndirnar í sýningu og margar stórar frumsýningar á ári hverju. Með Selfossbíó bætast við möguleikar á tveimur ráðstefnusölum til viðbótar fyrir alls 180 manns. http://www.selfossbio.is/

 

Fáðu nánari upplýsingar hjásölustjóraeða í síma 480-2500.

Skoðaðu hérmatseðla og fleiri myndir.



Riverside Spa

RiversideSpa á Hótel Selfossi hefur nú verið tekin í notkun. Um er að ræðaglæsilega heilsulind sem reist hefur verið í samvinnu við KLAFS í Þýskalandi. Þess má geta að Klafs er eitt fremsta fyrirtækið í heiminum í dag sem sérhæfir sig í hönnun heilsulinda og framleiðslu á hágæða gufu- og saunaklefum og öðrum tengdumbúnaði. Við fengum til okkar sérfræðing með áralanga reynslu á þessu sviði til að útfæra hugmyndir okkar og þema. Sú vinna hefur tekist einstaklega velog hafaharðduglegiriðnaðarmenn frá Selfossi og víðarunnið hörðum höndum síðustu mánuði við gerðheilsulindarinnar sem staðsett er nú í áður ónýttum hluta hótelsins.Snyrtistofa er samtengt Riverside Spa og er þar í boði úrval af snyrtingu, dekri og nuddi.

Allar nánari upplýsingar um tímapantanir á snyrtistofu og heilsulind í síma 482 2005.

Gestir Hótel Selfoss munu fá afnot afRiverside spa heilsulind á sérstökum kjörum.