RB-íbúðagisting býður gistingu í góðum og notalegum 2ja og 3ja-herbergja studíó-íbúðum.
RB-íbúðagisting er staðsett í miðbænum, að Kirkjuvegi 10, 2 hæð. Rúmgott bílastæði fylgir hverri íbúð. Stutt í verslanir-söfn-matsölustaði og veitingahús. Hárgreiðslustofa, tannlæknir og gallerí á jarðhæð.
Skammt frá Skansinum og skemmtilegar gönguleiðir í næsta nágrenni.
Íbúðirnar eru tilvaldar fyrir alla sem eiga leið til Vestmannaeyja, ýmist með stutta viðdvöl í huga eða til lengri tíma. |