Gistiaðstaðan
Syðra-Langholt við Stóru Laxá í Hrunamannahreppi er vel í sveit sett fyrir ferðamenn. Þar er fjölbreytt ferðaþjónusta í fögru umhverfi. Gisting fyrir a.m.k. 30 - 40 manns ásamt hálfu eða fullu fæði.
Í stórri hlöðu, sem hefur verið gerð upp með það fyrir augum að taka á móti gestum, er tilvalin aðstaða fyrir ættarmót og aðra hópa, allt að 180 manns í einu. |