Go to Main Page



  
Gisting >
Tjaldsvæðið við Reykjamörk
Heimilisfang: Tjaldsvæði Hveragerði Sími  4834605
Póstnúmer: 810 Fax 
Veganúmer: 1 Netfang  tourinfo@hveragerdi.is
Vegheiti: Hringvegur Link to website 
Þjónusta í boði nálægt eða við Tjaldsvæðið við Reykjamörk
          
Tjaldsvæðið v/ Reykjamörk Hveragerði

Tjaldsvæðið við Reykjamörk er í gróðursælu umhverfi þar sem aðstaða er öll hin besta. Salerni, sturtur, þvottavél og þurrkherbergi er að finna í aðstöðuhúsi á tjaldsvæðinu. Í aðstöðuhúsinu er upplýsingaathvarf þar sem meðal annars má finna upplýsingar um gönguleiðir í og við Hveragerði. Við aðstöðuhúsið er einnig yfirbyggt skýli með vöskum og borðum þar sem er upplagt að tylla sér og borða nestið sitt. Á svæðinu er boðið upp á losun fyrir húsbíla og þar er líka hægt að komast í rafmagn.