Go to Main Page



  
Gisting >
Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Hvolsvelli
Heimilisfang: Hlidarvegur 14 Sími  4878043
Póstnúmer: 860 Fax 
Veganúmer: 261 Netfang  tourinfo@hvolsvollur.is
Vegheiti: Fljótshlíðarvegur Link to website  http://www.njala.is
Þjónusta í boði nálægt eða við Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Hvolsvelli
  
Sögusetrið Hvolsvelli er menningar- og þjónustumiðstöð Rangárþings eystra. Þar er að finna margt forvitnilegt um menningu sveitarfélagsins fyrr og nú auk þess sem Sögusetrið stendur fyrir ýmsum uppákomum og viðburðum í samvinnu við einstaklinga og fyrirtæki í Rangárþingi eystra allt árið.

Í Sögusetrinu er að finna tvær stórar og einstakar sýningar: Njálusýningu þar sem gestir eru kynntir fyrir fræknum köppum og kvenskörungum fortíðarinnar og Kaupfélagssýning þar sem gestir upplifa verslunhætti og þjónustu kaupfélaganna á síðustu öld. Sýningarsalurinn Gallerí Ormur er nýttur í sýningarhald á verkum listamanna í Rangárþingi eystra auk annarra áhugaverðra listamanna sem fengið hafa innblástur úr náttúru og menningu sveitarfélagsins. Sögusetrið geymir líkan af Alþingi sem sett var upp í tilefni af Kristnitökuhátíðinni og þar geta gestir glöggt sig á þeim þætti sagnanna, þar sem höfðingjar og goðar stóðu á lögréttu og fluttu sín mál. Söguskálinn er veitingasalur í anda langhúsanna til forna. Hann nýtist við hin ýmsu tækifæri, hvort sem það eru veislur eða fundir. Upplýsingamiðstöð Rangárþings eystra er staðsett í Sögusetrinu þar sem gestir geta fundið hvers konar upplýsingar um svæðið og einnig er þar er lítil minjagripa- og bókabúð.

Opnunartími

Sumar 2008:

2.júní - 31. ágúst
Opið alla daga kl.09:00 - 19:00

Aðgangseyrir

Fullorðnirkr. 700

Ellilífeyrisþegar kr. 600

Stúdentar kr. 600

Börn yngri en 16 ára frítt


Hópar með 10 manns og fl. kr. 500