Fjölmargir gistimöguleikar eru í boði á Suðurlandi. Hótelin eru allt frá sveitahótelum upp í lúxus þægindahótel sem elska að stjana við þig. Í flestum bæjarfélögum á Suðurlandi má finna tjaldsvæði og er það mismunandi eftir svæðum hvað er í boði á hverjum stað. Fjölmörg tjaldvæði bjóða uppá tengingu við rafmagn, flest hafa salerni og rennandi kalt vatn og á sumum svæðum má finna heita sturtu. Tjaldsvæðin eru oftar en ekki nálægt sundlaug.
Að ferðast um hálendið þýðir ekki að þú þurfir að velja úr færri gistimöguleikum, hægt er að velja allt á milli svefnpokaplássa til lúxus hótela og allt þar á milli. Mörg fyrirtæki og alþjóðleg fyrirtæki halda ráðstefnur og aðra fundi á Suðurlandi. Þegar þú ferðast á Íslandi er Suðurland eitthvað sem þú verður að heimsækja.
Á nokkrum hótelum, gistiheimilum o.fl. er hægt að bóka gistingu beint í gegnum einfalda og þægilega bókunarvél vefsíðunnar. Þegar þú bókar er tekið 10% staðfestingargjald af bókun en afgangurinn greiðist á viðkomandi gististað. Það er ósk okkar á travelsouth.is að þessi bókunarvél auðveldi þér að upplifa Suðurland.
