Go to Main Page



  
Söfn >

Söfnin á Suðurlandi 

Á Suðurlandi má finna söfn við allra hæfi, bæði ný og gömul.  Á Skógum má finna sögusafn sem leiðir mann í allan sannnleika um líf bænda og búaliðs á öldum áður.  Í Vík í Mýrdal má Brydebúð, annað elsta hús á Suðurlandi og þar má sjá sögu ýmsra skipstranda sem voru tíð á öldum áður.  Í sögusetrinu á Hvolsvelli má upplifa Njálu uppá nýtt en einnig er þar að finna svokallaða Kaupfélagssýningu þar sem rakin er saga verslunar og viðskipta á Suðurland í um 100 ár.  Safnið er einnig einstakt af því leiti að þar er að finna muni sem hafa verið notaðir í verslunum víða um land en hafa verið leystir af hólmi hvort sem það hefur verið vegna tæknibreytinga eða breytinga í þjóðfélaginu.  Á Selfossi er svo að finna Listasafn Árnessýslu.

Í Vestmannaeyjum má skoða Pompei Norðursins, sem er talið eitt áhugaverðasta safn sinnar tegundar í heimi.  Hægt er að skoða þau heimili sem fóru undir ösku í Vestmannaeyjagosinu árið 1973 en þessi heimili hafa nú verið grafin upp.  Nálægt rótum eldfjallsins Heklu má finna Heklusetur, nánar tiltekið á Leirubakka, og er þar hægt að skoða hvernig þetta víðfræga eldfjall hefur haft áhrif á íbúa landsins um aldaraðir.  Draugasetrið á Stokkseyri býður uppá draugasýningu af bestu gerð og er farið yfir sögu frægra drauga sem hafa herjað á Sunnlendinga.  Einnig er að finna álfa, trölla og norðurljósasafn í á sama stað.  Í næsta nágrenni er hótel, veitingastaður, tjaldsvæði og margt fleira.

Þetta er aðeins brotabrot af þeim söfnum sem eru í boði á Suðurlandi, aðeins steinsnar frá Reykjavík.  Upplifðu það nýja og það gamla, travelsouth.is