Go to Main Page



  
Suðurland >

Suðurland

Upplifðu Suðurland - Allt sem þú þarfnast
Jöklar - hverir - hálendið - eldfjöll - fjöll - fossar - íslenskir hestar

Suðurland er sá landshluti sem flestir ferðamenn sækja heim.  Ferðamenn laðast að Suðurlandi vegna hins óendanlega fjölbreytileika sem svæðið hefur uppá að bjóða.  Allt árið um kring er ýmislegt hægt að sjá.  Allar árstíðirnar fjórar er nánast hægt að upplifa á einum og sama deginum og eykur það aðeins áhrifin af upplifuninni.  Gisting á fjögurra stjörnu hóteli eða ylur frá gashitara í þínu eigin tjaldi, þú velur hvernig þú upplifir Suðurland.

Það sem þú sérð og upplifir veltur auðvitað á því hversu miklum tíma þú vilt eyða á Suðurlandi, á sumrin er bjart allan sólarhringinn og á veturna má sjá norðurljósin dansa.  Þetta er aðeins eitt dæmi um andstæðurnar á Íslandi.  Á Suðurlandi getur þú upplifað allar þessar andstæður einna best, eldur og ís, hiti og kuldi, grænir akrar sem víkja fyrir svörtum sandi, flatlendi umlukið háum fjöllum hálendisins.  Frelsið sem þú hefur úr að velja er endalaust.

Náttúra og daglegt líf eiga samleið og gefa þér möguleika á því að skemmta þér fram eftir nóttu eftir að hafa farið í fjallaferð til að sjá ,,Hlið Helvítis" í Heklu.  Suðurland hefur allt sem hægt er að bjóða, komdu í heimsókn og mundu að frelsið er valmöguleiki.

Suðurland býður þig velkomin, við hlökkum til að sjá þig.