Langar þig í humar, vilt þú prófa heimagerðan íslenskan eða langar þig einfaldlega í pizzu ? Íslensk matargerð nýtur vaxandi vinsælda útum allan heim þar sem íslenskir matreiðslumenn eru þekktir fyrir að nota fyrsta flokks hráefni. Á Suðurlandi finnur þú veitingastaði sem kitla bragðlaukana á ýmsa máta. Margir veitingastaðir sérhæfa sig í sjávarréttum, aðrir einblína á þjóðlega rétti að hætti Þorrablóta. Þegar nær dregur að jólum bjóða flestir veitingastaðir uppá jólahlaðborð sem dregur marga að. Margir litlir veitingastaðir bjóða uppá einfaldleikann í sínum matseðlum þar sem íslenskt lamb og ferskt sjávarfang er það helsta sem í boði er.
Þegar þú ferðast um Suðurland færðu vatn í munninn og þú ferð ekki með tóman maga til baka.
