Á hverju ári er ýmsir viðburðir í gangi á Suðurlandi sem að laða að bæði heimamenn og ferðmenn. Má þar nefna ýmsar bæjarhátíðir, árstíðabundnar skemmtanir, mót og sýningar. Mikið er lagt í gera þessa viðburði eftirminnilega í alla staði og fjölskylduvæna og liggur mikill undirbúningur á bak við hverja hátíð. Margar hátíðir hafa fest sig í sessi og eru orðnar að árlegum viðburðum. Það er því um að gera að fylgjast með á hvað er að gerast á Suðurlandi og skipuleggja ferðalagið út frá því. Allir geta fundið sér eitthvað við hæfi á Suðurlandi.